Fara yfir í megininnihald

Morpholine

Skilgreining

Morpholine er sýrugildisstillari sem er einnig notaður í baðherbergishreinsiefni, hárfroðu og gólfbón. Efnið stillir sýrustig (pH) vöru til að bæta stöðugleika hennar eftir því sem á líður. Sérhver efnablanda á sér ákveðið sýrustig þar sem efnið virkar sem best. Til dæmis virkar efnablanda sem er svolítið súr betur til að fjarlægja sápufroðu. Andstæða þess er basísk efnablanda, sem getur virkað betur sem teppahreinsir. Við notum sýrustillandi efni til að tryggja að við náum fram besta sýrustiginu fyrir ákveðið verkefni. Ennfremur getur sýrustig efnablöndunnar haft áhrif á hversu lengi blandan endist í íláti, t.d. getur það takmarkað hneigð efnisins til að tæra flösku, ílát eða efnadreifara.